Framúrkeyrsla ? umfram greiðslur frá tryggingum ?

Frábært að hægt skuli vera að kalla greiðslur úr sjúkratryggingum framúrkeyrslu, hvað þá umfram útgjalda ? Hverjir gerðu fjárlagaheimildir og með hvaða gögn voru þeir í höndunum við gerðina ?? Er þetta bara úpps og óvænt úpps.... bara eins og bankahrunið úppsss.... íslenska krónan ..úppss..óvænt...
Ég er ekki alveg að skilja hvernig hægt er að segja svona þegar allar breytingar sem eru á undan gengnar teknar eru með þá er auðvitað breytt staða, hvurslags kjánaskapur er það að vera ekki búnir að endurreikna fjárlög með allt til þess í höndunum hverju sinni og ætti ekki að vera erfitt að vera með opið fjárlagaumhverfi þar sem breytingar geta átt sér stað, t.d að færa til eyðslur ? já það getur verið sárt að skera það fína niður !! sendiráð ? kannski að fara slíta slitastjórnum bankana sem kosta slatta tugmilljóna á mánuði, einnig reikna ég með að ríkið reki bankana með einhverjum hagnaði þar sem þeir eru skuldlausir, selji bankana og fái þar með fullt af peningum til baka. ef ekki þá beinlínis sé ég ekki afhverju ríkið var að bjarga rekstri bankana, hitt hefði þá verið ódýrara ekki satt.
Það er líka leiðinlegt að búa í landi með svo auma ríkisstjórn sem raun ber vitni, það er hneykslanlegt að við sættum okkur við þessar afturfarir í innanríkis sem og utanríkismálum. Það er ekkert að gerast ekkert, aumasta tímabil í Íslenskum stjórnmálum.
mbl.is Milljarða framúrkeyrsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölskylduvæn sunnudagshugleiðing

Mér hefur verið það hugleikið í gegnum tíðina hvað er gott fyrirtæki ? líka hvað er góður stjórnandi, Það helst líka oft í hendur þ.e.a.s stefnur sem eru farnar, þá eru til þeir sem setja markmiðin á ofurafkomu "no matter what" þá á ég við að markmiðum skal náð með öllum hætti "munið viðkomandi er í ábyrgðarstöðu" nú ef ofurstjórinn sér ekki fram á að ná settu markmiði þá rekur hann fullt af fólki ;) "ábyrgðarstaðan fína" jú hann ber eina ábyrgð og það er að ná settu markmiði. Get ekki séð að ábyrgðarstöður á íslandi séu öðruvísi en annarsstaðar,
Stjórnendur þurfa jú að selja hugmyndafræði sína til stjórnar ;) og þá heyra þeir einungis eitt það er arðsemi, ebita, afsriftir, Arðgreiðslur, annað er bara blíp og blop.
Ég ætla ekki að gera lítið úr duglegu fólki né setja út á neinn persónulega, en hvað varð stjórnendur sem vilja stækka og auka framleiðslu ? ekki bara hagræða ? Það er sem betur fer fullt af þeim til og vonandi að fjölskylduvænni stefna og þolimæðri peningar komi inní landið aftur, það myndi hjálpa.
Svo er það oft þannig að umhverfið býður ekki uppá hippahugsanir eins og þessar en það því miður er kominn tími til fara hálfa leið og leggja arðsemi og velferð til helminga þá erum við fín.

Eigið góðan dag

kær kveðja
Gunnar Björn


Einelti og klíkuleikur á alþingi er of dýr fyrir skattgreiðendur

Skrýtið að fyrirtæki sem skila árangri og ná settum mörkum eru með fólk í vinnu sem leggjur hug sinn og hjarta í að byggja upp vera duglegt og jákvætt, einnig stór fyrirtæki sem kannski eru með 10-50 manns í stjórn og allir í þessum fyrirtækjum hafa aðeins eitt markmið og það er að ná sem bestum árangri fyrir fyrirtækið sem þeir starfa hjá og leggja sig 100 % fram við það enda ráðnir til þess, þeir eru eflaust allir með sínar skoðanir og ólíkan pólitískan bakrunn, en skynsemin látin ráða ferðinni alltaf enda hagur fyrirtækissins nr.1 Þar er öllum ljóst og auðvelt að velja bestu leiðirnar og fyrir vel gefið fólk er það ekki erfitt. fyrirtæki myndi líða jafn kjánaleg vinnubrögð í sínum fyrtækjum né stjórn þeirra enda væri það dauðadæmur rekstur, já eins og ríkiskassinn, því það fyrirtæki fer strax á hausin ef engin getur sinnt því. Allur skrípaleikurinn sem er í gangi og valdabarátta á hug allra á þingi allavegana 60-70% af tímanum og löngu gleymt að sinna fólkinu í landinu. Ég fæ aumingjahroll þegar ég hugsa ujm ríkisstjórnina og allt getuleysið hennar og þá meina ég allir flokkar sem þar eru, afhverju getum við ekki verið skynsamleg ? afhverju þurfum við flokka ? flokkur er klíka !! klíkur voru bannaðar í barnaskólum og þóttu ribbaldar í daglegu lífi, ég skil ekki hvernig "vel" gefið fólk getur verið svona ósammála og líka vanvirðing við skattgreiðendur allur kostnað sem hlýst af öllum bölvuðum skrýpaleiknum, töfum og nýjum nefndum sem engin veit hvað gera né hvort nausynlegt hafi verið að ráða í nefnd ? óháð fyrirtæki eru best í þessu þá fer pólitíska handbragðið af og eflaust betra fyrir almenning.

hvað vigta 11 stórar ferðatöskur fullar af fé mikið ?

Innan við 48 klst áður en að Landsbankinn var þjóðnýttur, flugu 6 einstaklingar með einkaþotu Landsbankans erlendis með 11 stórar ferðatöskur ?? Mig langar í meiri upplýsingar um flug og annað frá rvk sem og kef á umræddum tíma ? eru þær upplýsingar ekki aðgengilegar ?
svo gæti þetta allt verið bull ;o) en spennandi saga

Er ekki kominn tími til að byggja upp landið ?? Okkur vantar nýja hugsun á þing

Það er ljótt að hugsa til þess að icesave er búið að kosta Íslendinga mikinn tíma og krafta að nú má sleppa takinu og kannski átta sig á að hér í landi er mikil vinna fram undan og þarf að ráðast í hana með tilliti til nútíðar og framtíðar.
Ég hef það sem skoðun að aðferðafræði við nálgun er mikilvægust og mikilvægt að hafa fólk sem heldur í við og er framsækið, en að hafa gömlu gildin sem hljóða svona "nú við bætum bara við lögreglumönnum ef glæpir aukast " :o) Þetta er bæði kostnaðarsöm hugsunarvilla og leysir engin vandamál.
Nú þurfum við að nálgast hlutina með það í huga að geta aukið störf í framtíð ekki fækkað, við þurfum að setja skýrar reglur fyrir fjármálafyrirtæki sem hafa frjálsan aðgang að almenningi með sínu áreiti.
Við þurfum ofan á allt að sætta okkur við nýja hugsun og ný vinnubrögð, við verðum að losa okkur við þá sem sitja í stjórn núna, þeir eru ekki vont fólk alls ekki :) þau eru alls ekki það sem þjóðin vill til að endurreisa efnahagin, nýtt fólk sem þorir að vinna gegn flokksöflum sem eru gamaldags og einkennast úrreltum reglum gamals lýðræðiss, en hvað um það og hver hefur áhuga á að fara betur með peninga og tíma. Og svona alveg í lokin þá er náttla staða sjálfstæðismanna léleg fyrir tilstuðlan formanns :) og batnaði ekki yfir helgina og þrátt fyrir að reyna þá set ég hann í ruslflokk ásamt hinum stjórnarflokkunum. hei ég má það.

Kveðja
Gunnar Björn


Menntun Já fólksins stóð ekki uppúr í svörunum þegar vonbrigðin blöstu við, frekar döpur.

Afhverju þarf fólk að fara svo grunnt að segja annað eins og að fólk vilji ekki borga skuldir sínar og til að sýna ennfremur á áróðurinn fóru menn að tala um menntun fólks væri minni hjá nei fólki ?? ok gæti verið rétt, og sögðu hvern og einn að dæma það ?? hahaha talandi um særðan hroka og gjörsamlega óviðunandi málsflutningur já mönnum til niðrunar sem hann stunduðu.
Ég er einn af þeim sem samþykkti ekki samkomulagið, ég gerði það af siðferðislegum ástæðum og ég sé ekki hvernig hægt er að taka hagfræðilega ákvörðun fram yfir ? jú ef þú ert vanur spillingu og vilt hafa allt frekar blurry þá er það fínt að taka hagfræðina fram yfir :) en auðvitað getum við ekki endalaust vaðið áfram í hagfræði án siðferði er það ? Svo til hamingju Ísland með að taka ákvörðun um að breyta til hreinsa út og byggja upp með réttu siðferði og hagfræðini með, þannig mun þetta vera okkur hið besta gæfuspor sem þjóð og vonandi sjá þeir fáu sem engin vill í ríkisstjórn sér þann sóma í að víkja fyrir nýrri hugsun og leyfa þjóðinni að ná sér.
Ég bý nú samt í lýðræðisríki og hefi unað hinu líka, Nú ætti að vinnast korter fyrir atvinnulífið í landinu eða kannski það verði enn út af borðinu, Steingrímur fullyrðir að gjaldeyrisforðin sé stór og dugi alveg ??? hvernig væri að koma atvinnulífinu aðeins í gang og minnka atvinnuleysi ráðast í fjárfestingar innanlands fyrir eitthvað af þessum aurum ??

kveðja
Gunnar Björn Björnsson


Ekki svo einfalt.

Afskriftir reiknast ekki alveg þannig, ákveðið verðmat frá fasteignamati ríkissins reiknar verðmæti eignarinnar og mætti áætla að fasteignamatið sé ekki eitthvað yfir 20 mills pr íbúð.
En krafan á milli er það sem peningarnir eru í því að þar koma afskriftir á kröfur sem ekki fást innheimtar og allur kostnaður við innheimtu reiknast sem tap ils. Einnig ef íbúðarlánasjóður selur íbúðirnar fljótt þá fær hann fljótt sína peninga og ekki skal gleyma að núna rúlla sami aurin tvisvar inn á bankan en í raun er um sömu peninga að ræða :) upp koma flottar tölur hagnaður á móti tapi og afskriftir á kröfur !
Svo má ekki gleyma að bankin mat eignina sem hann lánaði aurin til sem svo háa ætti hann í raun að taka hann á því verðmati og þá væri öllu bulli bara eytt og menn myndu passa sig
En ég veit ekki mikið um svona lagað og eflaust allt bull hahahahaha
mbl.is Bauð upp 44 íbúðir við Vindakór á 40 mínútum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

datt ég af baki eða ??? jæja nú passa ég heilsuna.

Ég glími veikindi þessa dagana og þess vegna kom þessi vangavelta, 

Það er mér umhugsunarefni nú afhverju þjóðmál og pólitík og allskyns bull getur tekið drjúgan þátt úr hversdagslífi hjá mér og allar þær neikvæðu umræður sem hægt er að þrífast á og orðum eins og " kreppan " það fleytir manni langt.      Eða gerir það í raun ? alls ekki, neikvæðni og gremja skilar engu öðru en óhamingjusömu og fátæku lífi til mín ! ég skráði mig ekkert í þann pakkan.... ég kann meira segja að segja peningar skipta ekki máli, afhverju er ég ekki bara "glaður"  Ég stundum velti því mér fyrir hvort ég sé að kafna úr heimtufrekju og brjálæðri bræði til peninga með því að vera stanslaust að tala um hvað þá vanti. Ég hef í raun miklu meira að gera við góða heilsu :/ ég í raun sé eftir þeim tíma sem ég nýtti mér ekki til að hugsa um heilsuna mína og gaf mínum nánustu tíma með mér, jú afsakið ég var að vinna sem einhver sagði að væri svo göfugt og gott ?  Ég myndi alla daga vikunar skipta á góðri heilsu og tugum milljóna líka hundruðum, ég myndi hugsa mig tvisvar um hvort lífið sé ekki meira og innhaldsríkara en með peningum, ég myndi í raun gera allt annað en að elta peningana, þó svo skólar kenni hið slíka :( sem er sorglegt því mikil óhamingja verður alltaf þar sem fólk er misjafnvel á ísinn sett. Það sem að mig langar að koma fram hér er "staldraðu við og hugsaðu um breytt gildi ! gildi sem veita okkur meira og þroska okkur betur". Ég vona að samt að hið jákvæða sigri, ég er hvort eð er búinn að tapa miklu í peningum en það angrar mig ekkert svo hægt sé að tala um, ég hinsvegar stefni á góða heilsu og óska ykkur öllum hins sama. 


Hverjum okkur öðru verri ekki satt ?

Ég vill ekki tala illa um Borgarstjóran í Reykjvík !!  ég vill heldur ekki missa húsið mitt ? 

Bankin hækkaði skuldirnar mínar um mest 70 %  hluta til gengistengt ?

Hvar er sá heiðursmaður á alþingi sem tilbúinn er að standa við orð sín :) glætan hehehehe....

Borgarstjórin í Reykjavík er ekkert fyndin heldur tækifærissinni sem nýtti sér hóphúmor 

Nú er hann Gingerboy in filth city sem brosir í myndartökum og ropar lélegri ensku út úr sér ...!!  

Bankarugl sem engan enda ætlar að taka og hvar eru lögin fyrir fólkið við þessum hryllingi og plís

Plís ekki taka þátt í að búa illt umhverfi og spillt... nú er smá séns á að fólkið geti endurheimt.

Ég auðvitað þoli ekki fólk sem svíkur jafnharðan og telur það bara óheppið orðaval 

Einnig ónefndur sem taldi listamenn ættu að fá sér vinnu ?  :)  hélt að listamaður væri starfsheiti ?

Er hægt að vera atvinnulaus þingmaður ??

Staðreyndin er að þingmenn ættu að drullast til að fá sér vinnu eða vinna vinnuna sína.

Sorglegasta stéttin í landinu gerir atlögu að listamanna stéttinni ....................!!!!!!!!

Almenningur þurfti að velja og var auðvelt sem aldrei áður fyrr.. valdi listamenn og útrýmdu hinum.   


ég sem hélt að ríkið ætti bankana ? og við værum ríkið

með fullri virðingu við þessi fjármálafyrirtæki þá sannar það sig best að undirbúningur og vinnan við endureisn stofnanna er í samræmi við allt það spilltasta sem til er, núna fyrst er verið að ræna eignum og fara illa með fólk, og það besta er að af starfsfólki bankanna telur sig vera vinna göfugt starf. en er í raun að vinna skítverk ríkissins, og margir hverjir svo hræddir um vinnu sína að þeir leggja sig extra mikið fram við að endurheimta, yfirtaka, stefna, nú til að verða ekki reknir sjálfir, og nýjar hugmyndir um hvernig megi ná peningum inní bankan óháð hvaða afleiðingar sem það hefur eru vel þegnar, og hvað er málið með samkeppni innann bankanna ? er það sem við þurfum að eyða fjármunum í auglýsingaherferðir ????? bíddu er ekki sami eigandi að öllum bönkunum, hahahahaha fávitar og hvað er málið með mismunandi kjör ??? er einhver þarna uppi sem er til í að stoppa þenna grínleik og bara fara taka til í sjoppunni ? 

Svo langaði mig að segja við þá sem samþykkja upplýsingaleynd banka eru þeir sem þurfa á henni að halda vegna ósiðlegra/ósmekklegri meðferð á almannafé, sem sagt listinn með þeim sem samþykkja er liusti til að leggja á minnið :)  ef aftökur yrðu nú lögleiddar í þessu lögleysulandi höfum við einhverja til að byrja á.


mbl.is Hafa yfirtekið 575 íbúðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband